New Paragraph
Teymið okkar
Með áratuga reynslu af öllu undir sólinni sem tengist áhrifaríkri markaðssetningu.
Umfram allt þá elskum við það sem við gerum - þú finnur það strax á þjónustunni.
Unnur
Stofnandi
unnur@sandmarkadsstofa.is
Með áratuga reynslu af öllu undir sólinni sem tengist áhrifaríkri markaðssetningu.
Umfram allt þá elskum við það sem við gerum - þú finnur það strax á þjónustunni.

Við erum lifandi á Instagram!
Frá hugmynd að herferð🪩Smá innsýn bak við tjöldin í herferð fyrir MÚV. Ótrúlega skemmtilegt ferli frá fyrstu hugmynd að lokaútkomu!
En hvernig fær maður fólk til að taka MÚV? 🕺
Við sömdum dans og bjuggum til dansáskorun fyrir samfélagsmiðla þar sem fólk kepptist um að vera fyrst til að taka MÚV á mismunandi stöðum. Markmiðið var einfalt: Skemmtilegur dans með auðveldum sporum svo allir gætu verið með!
@_valgeir bjó til MÚV-lagið og það var ótrúlega gaman að sjá hversu margir tóku þátt í dansáskoruninni og notuðu lagið á samfélagsmiðlum!
Við sáum um uppsetningu og efnisgerð fyrir samfélagsmiðla MÚV. 📲
Markmiðið var að skapa skemmtilegt og lifandi efni sem endurspeglaði stemninguna í herferðinni, vakti athygli og hvatti fólk til að taka þátt!
Herferð fyrir Glacier Fight Night, 1.500 manna bardagakvöld í Framheimilinu! 💥
Það hefur verið frábært að vinna með Bjarka og teyminu hans hjá RVK MMA og GFN. Metnaðurinn og orkan er svakaleg!
Við hjá SAND sáum um fjölmiðlaherferð, póstlistaþjónustu, vefsíðugerð, stafræna markaðssetningu, birtingar og grafíska hönnun.
Við erum strax byrjaðar að telja niður að GFN 4!
Við erum 1 árs!🥹 (aðeins rúmlega samt)
Það er ótrúlegt að hugsa til þess að það sé komið rúmt ár síðan við stofnuðum SAND og réðum okkar fyrsta starfsmann.
Síðan þá höfum við vaxið og dafnað, unnið með yfir 50 frábærum vörumerkjum og erum nú að ráða okkar sjötta starfsmann. Það hefur verið nóg að gera, hellingur að læra og sem betur fer líka mjög gaman á leiðinni!
Í tilefni afmælisins gáfum við út glænýja heimasíðu sem sýnir aðeins betur hver við erum, hvað við gerum og nokkur af þeim verkefnum sem við höfum fengið að vinna að síðasta árið 💫 www.sand.is
Við erum ótrúlega spenntar fyrir því sem er framundan, að halda áfram að vinna með frábæru fólki, taka að okkur ný og spennandi verkefni og að skapa og augnablik sem skipta máli.
Ef að þig vantar markaðsteymi, hugmyndir eða bara gott fólk til að koma verkefni af stað, þá má alltaf heyra í okkur ☕️
Við Sand teymið skelltum okkur til Hamburg á OMR, stærstu markaðsráðstefnu í Evrópu!
Við lærðum um svo margt nýtt, fræddumst um nýjungar í markaðsmálum, AI og stafrænnar þróunar, fengum innsýn inn í expo hjá stærstu fyrirtækjum í heimi og síðast en ekki síst hittum við ótrúlega skemmtilegt og metnaðarfullt fólk alls staðar að úr heiminum💫
Það er alltaf jafn dýrmætt að stíga aðeins út úr daglegu amstri, fá nýja sýn á markaðsmálin og koma heim með ferskar hugmyndir, innblástur og enn meiri metnað fyrir því sem er framundan!
Páskaherferð með @freyja_iceland 🐰🍫
Virkilega skemmtilegt samstarf með Freyju þar sem við dreifðum páskaeggjum víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.
Billboards og buzz skjáir voru svo notaðir sem vísbendingar hvar eggin voru falin!
Samhliða herferðinni unnum við fjölbreytt efni fyrir samfélagsmiðla þar sem við spurðum einfaldlega: „Hvað eru páskar fyrir þér?” 💛
Swipe fyrir krúttaðasta myndband ársins af bestu Lúnu okkar.
View more


















